Skatastaðavirkjun C

Jökulsár í Skagafirði

- Skatastaðavirkjun C

Jökulsárnar í Skagafirði og vatnasvið þeirra teljast með verðmætustu svæða landsins ef litið er til menningarminja, jarðminja, vatnafara, tegunda lífvera, vistkerfa og jarðvegs. Landsvirkjun áformar að virkja í Jökulsánum í Skagafirði og reisa 156 MW virkjun með Skatastaðavirkjun C.

Mynd © Mats Wibe Lund

AÐALATRIÐI UM SVÆÐIÐ

  • Jökulsárnar í Skagafirði eru á lista yfir bestu flúðasiglingaár í Evrópu.
  • Jökulsárnar í Skagafirði og vatnasvið þeirra eru taldar meðal verðmætustu svæða landsins þegar kemur að menningarminjum, jarðminjum, vatnafari, verðmætum tegundum lífvera, vistkerfum og jarðvegi.
  • Með virkjunum yrði votlendið á láglendi Skagafjarðar í hættu.
  • Fuglalíf er mikið meðfram Jökulsánum á láglendi. Þar er mikið heiðagæsavarp og grágæsavarp og að minnsta kosti þrettán fuglategundir á válista
  • Með Skatastaðavirkjun (B og C) yrði búsvæðum fágætra, staðbundinna bleikjustofna í straumvötnum á hálendinu raskað.
  • Virkjanir í Jökulsánum í Skagafirði gætu haft slæm áhrif á atvinnulíf í héraðinu, sérstaklega yrði ferðaþjónusta fyrir þungu höggi og sumar greinar hennar leggðust af.

Í deiglunni

Svæði

  • Facebook
  • Vimeo
  • Soundcloud
  • RSS
moya