Sveifluháls

Krýsuvíkursvæði

- Sveifluháls

Daglega heimsækja um þúsund ferðamenn þetta vinsæla ferðamannasvæði, sem flestir þekkja sem jarðhitasvæðið í Krýsuvík. HS Orka áformar að reisa orkuver á jarðhitasvæðinu í Sveifluhálsi með 50-100 MW raforkuframleiðslu. Það hefði í för með sér mikið rask á svæðinu: 10-20 vinnsluholur, vegagerð, gufuleiðslur og línutengingar.

Mynd © Sóley Stefánsdóttir

AÐALATRIÐI UM SVÆÐIÐ

  • Daglega heimsækja um þúsund ferðamenn þetta vinsæla ferðamannasvæði, sem flestir þekkja sem jarðhitasvæðið í Krýsuvík.
  • Utan jarðhitasvæðanna er rennandi vatn á yfirborði nánast óþekkt í Reykjanesfjallgarði vestan Hellisheiðar.
  • Óháðar athuganir benda til að samanlögð vinnslugeta svæðanna sé um 120 MW til 50 ára en álbræðsla í Helguvík þarf 435 MW.
  • Virkjunarhugmyndirnar eru ekki taldar sjálfbærar og útlit fyrir að orkan úr svæðunum klárist á fáeinum áratugum.
  • Rúmlega 60% landsmanna búa í nánd við óspillta náttúru Krýsuvíkursvæðisins og Reykjanesskagans.
  • Svæðið er sérstakt fyrir allmarga sprengigíga en þekktastir þeirra eru Grænavatn, Gestsstaðavatn og Arnarvatn.
  • Hugmyndir eru um orkuver skammt norðan við Grænavatn.
  • Áformuð virkjun myndi þurfa 10–20 vinnsluholur.
  • Svæðið er innan Reykjanesfólkvangs.

Í deiglunni

Svæði

  • Facebook
  • Vimeo
  • Soundcloud
  • RSS
moya