Landsvirkjun áformar að reisa þrjár virkjanir í Þjórsá. Upphaflega átti að selja allt rafmagn úr virkjununum til Alcan á Íslandi vegna fyrirhugaðrar stækkunar á álbræðslunni í Straumsvík. Í kosningum um stækkun álbræðslunnar 2007 höfnuðu Hafnfirðingar tillögunni og því hefur Landsvirkjun verið í viðræðum við hugsanlega kaupendur að orkunni síðan þá, þar á meðal að selja orkuna til fyrirhugaðrar álbræðslu í Helguvík sem enn hefur ekki fengist leyfi fyrir. Einnig eru áform um virkjun 8 km fyrir neðan friðland Þjórsárvera með Norðlingaölduveitu, en sú virkjunarhugmynd fellur nú í verndarflokk samkvæmt rammaáætlun. Rétt við Þjórsá, nánar tiltekið við Tungnaá, eru áform um að reisa Búðarhálsvirkjun og fellur hún í nýtingarflokk.
Virkjunarhugmyndirnar þrjár í neðri hluta Þjórsár, þ.e. Hvammsvirkjun, Holtavirkjun og Urriðafossvirkjun, falla nú allar í biðflokk samkvæmt rammaáætlun. Í drögum að rammaáætlun féllu þessar virkjunarhugmyndir í nýtingarflokk en vorið 2012 þegar þingsályktunartillagan um rammaáætlun var samþykkt var ákveðið að færa hugmyndirnar í biðflokk og skoða þær betur áður en ákvörðun um vernd eða nýtingu yrði tekin.
Áform Landsvirkjunar um virkjanirnar í Þjórsá hafa valdið miklum deilum og ágreiningi hjá íbúum við ána. Dæmi eru um að heilu fjölskyldurnar hafi tvístrast í skoðunum sínum og félagsandi sveitanna hefur minnkað til muna.
Virkjanir munu stefna náttúrufegurð í voða og rjúfa þá friðsæld sem ríkir við ána.
Þrír fossar í ánni koma til með að skemmast, þ.e. Búði, Hestfoss og Urriðafoss. Árniður og kliður fossanna mun þagna og náttúruupplifun sveitanna því breytast til muna. Út frá hljóðum Þjórsár, t.d. frá Búða og Minna-Núpsflúða, hafa menn frá fornu fari spáð fyrir um veðrið og gera enn.
Raskið á einstakt lífríki árinnar getur orðið mikið ef virkjunaráform ganga eftir og aukin hætta verður á svifryksmengun og rofhættu þar sem árfarvegurinn kemur til með að verða þurrari sökum minnkaðs rennslis í ánni.
Ennfremur er um að ræða framkvæmdir á einu öflugasta landbúnaðarsvæði Íslands og í nánasta umhverfi manna. Þrengt verður að landbúnaðarlandi, með lónum, vegum og öðrum framkvæmdum sem fylgja.
Mynd © Thorsten Henn