Fyrirlestur: Grænu gildin og atkvæðin PDF Prenta Rafpóstur
Skrifað af Viðari Þorsteinssyni   
27. Jan. 07
Þorvarður ÁrnasonÞorvarður Árnason, doktor í umhverfisfræðum, heldur opinn fyrirlestur á vegum Framtíðarlandsins undir yfirskriftinni Grænu gildin og atkvæðin: Umhverfispólitík á Íslandi árið 2007. Fyrirlesturinn fer fram laugardaginn 3. febrúar klukkan 13:00 í Iðnó, fundarsal á efri hæð.

Í erindinu verður velt vöngum yfir því hvort græn stjórnmál séu orðin að veruleika á Íslandi og - ef svo er - hver sé driffjöður þeirra,
hvað einkenni þau og hvers megi af þeim vænta. Einnig verður fjallað um fjölbreytileika í grænum viðhorfum sem m.a. birtist í ólíkum
hugðarefnum og/eða aðgerðum umhverfisverndarsinna og spurt hvort slík fjölbreytni sé grænum stjórnmálum til framdráttar eða trafala. Rætt verður um möguleika og kosti þess að ólíkir hópar/einstaklingar geti náð saman um ákveðin grunngildi sem hafa mætti að leiðarljósi í umhverfispólitísku starfi. Að lokum verður rætt um tengsl grænna gilda og sjónarmiða við hefðbundin vinstri-hægri skil í stjórnmálum.

Gert er ráð fyrir stuttum umræðum að fyrirlestri loknum, og kaffiveitingar verða til sölu. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill meðan húsrúm leyfir.

Þorvarður Árnason er doktor í húmanískum umhverfisfræðum og hefur stundað rannsóknir á náttúrusýn og umhverfisvitund Íslendinga um árabil. Hann starfar nú sem forstöðumaður Rannsókna- og fræðaseturs Háskóla Íslands á Hornafirði.
 
< Fyrri   Næsta >